Styrkja samtökin

Styrktu okkur mánaðarlega um 25 kg af fóðri

Styrktu okkur mánaðarlega um 100 kg af fóðri

Frjáls framlög

Dýravaktin – samtök um réttindi og velferð dýra, eru félagasamtök sem stunda ekki atvinnurekstur og þar með byggir starfssemi félagsins á styrkjum og frjálsum framlögum frá stofnunum og einstaklingum. Samtökin standa fyrir fóðrun þúsunda andfugla á stórhöfuðborgarsvæðinu og víðar yfir vetrartímann. Við þurfum að gera ráð fyrir a.m.k. 350 kg af orkuríku fuglakorni fyrir andfugla daglega þá 5 mánuði sem gefið er. Þetta þýðir að meðaltali um 45.000 til 50.000 kr. á dag fyrir alla gjafstaðina eða um það bil 1.400.000 krónur á mánuði.

Þökkum eftirtöldum styrktaraðilum stuðninginn:

Gæludýr.is. Stuðningur þeirra hefur skipt sköpum í lífi skjólstæðinga okkar, andfuglanna en fyrirtækið hefur stutt okkur um 3 tonn af gæðafóðri fyrir andfugla síðastliðna tvo vetur.

Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur stutt okkur veglega síðustu tvo vetur um fóður að virði 200.000 kr.

Kópavogsbær hefur stutt okkur um 100.000 króna framlag tvívegis

Hafnarfjarðarbær hefur stutt okkur um 100.000 krónur

Bakarameistarinn gefur okkur gæðabrauð fyrir fuglana tvisvar í viku í janúar og febrúar

Tölvuland annaðist hönnun vefsíðu og gaf alla vinnu til Dýravaktarinnar

FBG ráðgjöf ehf. – FBG.is hefur veitt samtökunum endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf og bókhaldsþjónustu.

Bankaupplýsingar fyrir styrki til Dýravaktarinnar:

0357-26-001700. Kennitala: 630125-0220