Gerast sjálfboðaliði

Senda skráningu

Hvaða svæði getur þú tekið að þér?

9 + 9 =

Gerast sjálfboðaliði

Það er góð tilfinning að geta lagt sitt af mörkum til að hjálpa dýrum. Við bjóðum þér að slást í hóp sjálfboðaliða sem fóðra andfugla á veturna. Fuglarnir sækja á staði þar sem þeim hefur verið gefið um áraraðir sbr. á Reykjavíkurtjörn. Þegar jarðbönn eru og kalt í veðri gefum við fuglunum orkuríkt fuglafóður daglega og stundum tvisvar á dag. Við vitum að starf okkar skiptir sköpum og léttir lífsbaráttu fuglanna sem auðga líf okkar og gleðja okkur með nærveru sinni. Viðkomandi þarf að hafa bifreið til umráða, og hafa brennandi áhuga á velferð dýra. Skráðu þig hér á síðunni.

Sjálfboðaliðarnir okkar

Arianne Gäwiler

Arianne er fædd í Sviss en hefur búið lengi á Íslandi. Hún er sannkallaður fuglahvíslari. Hún býr með 3 hundum og hænsnum og ásamt því að vera undanfari í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík er hún snögg á vettvang ef villtir fuglar í neyð eru annars vegar. Hún hefur m.a. bjargað allt að 300 Fýlsungum frá bráðum bana á þjóðvegum landsins á síðustu haustmisserum á eigin vegum. . ” Í ljósi eyðileggingar búsvæða dýra í heiminum lít ég á það sem siðferðilega skyldu mína að hjálpa dýrum, sér í lagi villtum fuglum, þar sem ég get. “

Ásta og Örn

Ásta og Örn eru sannir dýravinir. Þegar þau settust að rétt við Hafnarfjarðarlæk og upplifðu nálægð við fuglana skynjuðu þau fljótt hve banhungraðir þeir voru sérstaklega þegar kólnaði og allt var snævi þakið.” Það var nánast eins og þeir grétu af hungri “. Þau elska útiveru og þessa nálægð við villta fugla og ákváðu að gerast sjálfboðaliðar. Þau standa nú vaktina fyrir fuglana í Hafnarfirði ásamt öðrum sjálfboðaliðum Dýravaktarinnar yfir veturinn.

daiva januskaite

Daiva er frá Litháen og hefur búið á Íslandi í 24 ár. Hún á ég fimm ketti, tvö fiskabúr og villta mús, sem hún bjargaði frá dauða. Hún hefur alist upp með dýrum og getur ekki hugsað sér lífið án þeirra. Daiva er alltaf reiðubúin að hjálpa dýrum og annast um þau. Hún stendur vaktina fyrir okkur í Kópavogi.

Elísabet Björnsdóttir

Elísabet er framhaldsskólakennari og sinnir fuglafóðrun í Kópavogi. Hún á langhundinn Lóu sem er 5 ára. Hún er þeirrar skoðunar að allir eigi að leggja sitt af mörkum til þess að lifa í sátt og samlyndi við dýr og náttúru. Hún er traustur dýravinur og alltaf tilbúin til að hjálpa dýrum í neyð.

Ingiveig Gunnarsdóttir

Ingiveig er stofnandi og stjórnarformaður Dýravaktarinnar. Hún hefur verið ötull talsmaður dýraverndar um langt skeið. Hún hefur í gegnum árin skipulagt náttúrulífsferðir vítt og breitt um heiminn fyrir Íslendinga m.a. til Madagaskar , í Amasón regnskóginn og til Galapagos eyja og hefur starfað sem leiðsögumaður á Íslandi í rúm 30 ár. Hún hefur lagt stund á nám í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands í seinni tíð og hefur brennandi áhuga á öllu er snýr að náttúru- umhverfis- og dýravernd.  Ingiveig vill beita sér með virkum hætti til að stuðla að bættri velferð dýra og mætir á vettvang til að hjálpa þegar dýr eru í neyð.

Ingunn og þröstur

Ingunn og Þröstur elska dýr og vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stuðla að vellíðan og velferð þeirra. Þau eru nútímamanneskjur og bera sem slík ábyrgð á vistkerfi nærumhverfis síns. Þau eiga tvo ketti, Lísu 10 ára og Leó 5 ára. ” Það er mikilvægt að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi sem snýr að villtum dýrum, eins og fóðrun andfugla.”

Jon Wilke

Jon Wilke er sérkennari frá Þýskalandi, nýlega sestur að á Íslandi og þegar orðinn mjög góður í að tala tungumálið. Hann hefur alltaf verið mikill dýravinur og hefur þá skoðun að dýr eigi rétt á öruggu náttúrulegu umhverfi sem lifandi skynverur. „Það á að sýna dýrum samkennd í verki og þakklæti fyrir þá skilyrðislausu gleði sem þau veita okkur“. Að hans mati er mjög gefandi og græðandi fyrir andann að vera sjálfboðaliði hjá Dýravaktinni og geta gert góðverk.

Kjartan Þröstur Þorvaldsson

Kjartan er fæddur árið 1978 í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum (107). Hann er yngstur af átta systkinum. Frá unga aldri hefur hann haft mikinn áhuga á dýrum og átt meðal annars hamstra, dúfur, kanínur, páfagauka og ketti. Árið 2006 eignaðist hann hundinn Tyson, sem lifði í 15 ár og féll frá árið 2021. Tyson er mikið saknað. Í dag á hann tvo páfagauka, Lemon, sem hann eignaðist 2019, og Blæ, sem var einn af þremur ungum hennar. Blær kom í heiminn á dánardegi Tyson árið 2022 og verður þriggja ára árið 2025.

Kolbrún og Inga Jóna

Þær Inga Jóna og Kolbrún hafa þekkst lengi í gegnum synina sem voru æskuvinir. Þær hafa átt heimilisdýr í gegnum tíðina og alltaf borið hag og velferð dýra fyrir brjósti. Þær stöllur komust í kynni við hópinn : Björgum dýrum í neyð – og skiptast nú á að gefa stórum hópi af Grágæsum, Álftum og öndum daglega næringarríka fóðurköggla og fuglakorn sem þær fá hjá Dýravaktinni. “ Við erum stoltir sjálfboðaliðar Dýravaktarinnar og hvetjum fólk til að slást í hóp sjálfboðaliða, það er svo gefandi að geta hjálpað villtum fuglum þegar fæðuskortur herjar á þá.“

Ólöf Lára Hafsteinsdóttir

Ólöf elskar öll dýr og hefur annast þau mörg í gegnum tíðina. Hundar og kettir eiga athygli hennar óskipta sem og önnur dýr. Henni finnst verðmætt að tilheyra því öfluga dýravelferðarstarfi sem Dýravaktin sinnir sérstaklega við fóðrun andfugla yfir veturinn. „Það er bæði gefandi og hressandi fyrir sál og líkama að vera innan um dýr og að geta rétt þeim hjálparhönd þegar þau þurfa.“

Sara miller

Sara hefur verið mikill dýravinur frá unga aldri og dýr hafa alltaf átt stóran stað í hjarta hennar. Ástríða hennar fyrir dýravelferð hefur mótað líf hennar og hún vinnur nú á Dýralæknastofu Dagfinns með það markmið að hefja dýralæknanám í náinni framtíð. Hún situr í stjórn Dýravaktarinnar og lítur á það sem mikinn heiður að fá að vera sjálfboðaliði. Að hugsa um fuglana yfir vetrartímann og styðja við velferð dýra veitir henni ómetanlega gleði og styrkir ástríðuna hennar fyrir dýrum enn frekar.

Siggerður Gísladóttir

Siggerður ólst upp á landsbyggðinni, í návígi við náttúru og dýr. Dýrin hafa alltaf átt hug hennar og hjarta. Í gegnum árin hafa verið mörg dýr á heimilinu, henni til ómældrar ánægju. Í dag á hún lítinn hund sem heitir Moët og saman njóta þau þess að vera úti í náttúrunni. Henni þykir ótrúlega gefandi að vera sjálfboðaliði og finnur fyrir þakklæti elsku fuglanna.