Dýravaktin

Fuglarnir þurfa fæðu og sveitarfélögin þurfa að axla ábyrgð

Yfirlýsing Dýravaktarinnar vegna fréttar Vísis 11. nóvember 2026 og minnisblaðs sérfræðinga fjögurra sveitarfélaga um fuglafóðrun.
Dýravernd og velferð dýra eru samfélagsmál. Dýravaktin mótmælir því að almennar fullyrðingar um möguleg neikvæð áhrif fuglafóðrunar séu látnar réttlæta að draga úr stuðningi við vetrarfóðrun án þess að lagt sé fram staðbundið mat á fæðuþörf fuglanna. Minnisblaðið sýnir ekki fram á að starf samtakanna hafi valdið þeim skaða sem þar er varað við.
Við fögnum því að umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar óski eftir samstarfi. Við erum reiðubúin til þess. Samstarfið verður að byggjast á faglegu mati, gagnkvæmu trausti og velferð fuglanna. Dýravaktin mun ekki taka þátt í fyrirkomulagi sem við teljum skilja fugla eftir án nægrar fæðu.

Kílóafjöldi einn segir ekki hvort fóðrun sé hæfileg

Í fréttinni eru allt að 40 kílóa daglegar gjafir Dýravaktarinnar bornar saman við 3–10 kíló sem Dýraþjónusta Reykjavíkur gefur á völdum dögum. Samanburðurinn er ófullnægjandi án upplýsinga um fuglafjölda, tegundasamsetningu, fóðurgerð og aðgang að náttúrulegri fæðu.
Fimm kíló fyrir 300 fugla jafngilda um 17 grömmum á fugl, ef allir fá jafnt. Í framkvæmd er samkeppni um fóðrið og sumir fá minna en aðrir. Ekki er hægt að ákveða hæfilega gjöf með föstum kílóafjölda án þess að meta aðstæðurnar.
Við gefum að jafnaði um 25–40 kíló á dag við Reykjavíkurtjörn þegar umfang fóðrunar kallar á það. Við teljum fugla, metum veður og fæðuaðgengi og fylgjumst með viðbrögðum þeirra. Mikil aðsókn og samkeppni um fóður eru meðal þeirra athugana sem við leggjum til grundvallar, ásamt öðrum upplýsingum.
Dagleg vetrarfóðrun þýðir ekki óbreytt magn óháð aðstæðum. Gjafirnar eru aðlagaðar hverju sinni.

Vetursetan hófst ekki með Dýravaktinni

Sjálfboðastarfið sem Dýravaktin byggir á hófst um veturinn 2022. Samtökin voru formlega stofnuð í janúar 2025. Veturseta andfugla og fóðrun við Reykjavíkurtjörn eiga hins vegar um aldarlanga sögu. Borgaryfirvöld fluttu fugla á Tjörnina, létu vængstýfa fugla og tryggðu reglulegar gjafir.
Í skýrslu Náttúrufræðistofnunar Fuglalíf Tjarnarinnar árið 2024 er lýst um 800–1.300 vetrargestum á árabilinu 1990–2005 en um 600–800 síðustu ár fyrir ritun hennar. Þær tölur styðja ekki einfalda frásögn um að nýlegt starf Dýravaktarinnar hafi skapað óhóflegan fjölda vetrarfugla. Til að meta áhrif starfsins þarf sambærilegar talningar og skýrt rannsóknartímabil.
Höfundar skýrslunnar, Ólafur K. Nielsen og Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingar fagna jafnframt framtaki fuglavina og vísa á hópinn Björgum dýrum í neyð — sjálfboðastarfið sem Dýravaktin byggir á.

Fóðrun og smitvarnir þarf að meta saman

Dýravaktin hefur frá upphafi ráðfært sig við innlenda fuglavistfræðinga og fuglafræðinga sem þekkja sérstaklega sögu og lífríki Reykjavíkurtjarnar. Við höfum jafnframt notið samstarfs og ráðgjafar fuglafræðinga, dýrahirða og dýralækna hjá WWT Wildfowl & Wetlands Trust í Slimbridge í Bretlandi og dýralækna hjá MAST. Starfið hefur þróast með þessari ráðgjöf og reynslu sjálfboðaliðanna.
Samkvæmt upplýsingum sem við höfum fengið frá sérfræðingum WWT í Slimbridge er á þeim starfsstöðum veitt viðbótarfóðrun tvisvar á dag yfir veturinn og gjafir hefjast þegar í október. Reglulegar gjafir og náttúruleg fæðuöflun geta því farið saman. Aðstæður eru þó ólíkar milli landa og svæða; framkvæmd við Reykjavíkurtjörn þarf að byggjast á mati á veðurfari, fæðuaðgengi og þörfum fuglanna hér.
Hérlendis starfa engir sérgreinadýralæknar í villtum fuglum. Aðgangur að sérþekkingu ráðgjafa okkar hjá WWT í Slimbridge hefur því verið sérstaklega mikilvægur en þar hafa m.a. fjöldi álfta vetrarsetu. Við höfum einnig notið góðs samstarfs við dýralækna hjá MAST, meðal annars sérgreinadýralækni alifuglasjúkdóma. Starfið hefur þróast með þessari ráðgjöf og reynslu sjálfboðaliðanna.

Við tökum smithættu alvarlega.

Í tölvupósti veturinn 2025 benti Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir hjá MAST, á smithættu vegna þéttleika fugla og mengunar fóðurs af driti. Hún sagði jafnframt að MAST mælti ekki með að hætta fóðrun fugla sem þegar hefðu verið fóðraðir þann vetur. Breytingar gætu valdið streitu, tilfærslu fugla og smitdreifingu á dreifbýlissvæðum.
Rosa Lopez, dýralæknir hjá WWT, lýsti því að viðbótarfóðrun hefði sums staðar verið minnkuð vegna fuglaflensu en fyrirhugað að auka tíðnina aftur í frosti til að fyrirbyggja önnur heilsufarsvandamál. Þessi ráðgjöf undirstrikar að meta þarf bæði áhættu vegna smits og áhættu vegna fæðuskorts.
Við eigum fyrirhugaðan fund með MAST í næstu viku og viljum þróa skýrt verklag um fóður, magn, hreinlæti og vöktun.

Mengunarvanda Tjarnarinnar verður ekki svarað með minni fæðu fyrir fuglana

Mengun Tjarnarinnar og Vatnsmýrarinnar á sér langa sögu. Í nýlegri kynningu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru meðal álagsþátta nefnd skólplosun, ofanvatn frá götum, fráveitulagnir, flugvallarsvæðið og gamlir öskuhaugar, auk fuglalífs og fóðrunar.
Næringarefnaálag frá fóðri og driti þarf að rannsaka og takmarka. Það má hins vegar ekki rugla því saman við mengun af PFOS og öðrum þrávirkum efnum eða gefa í skyn að fuglarnir og Dýravaktin skýri hinn margþætta mengunarvanda.
Við gefum aðallega íslenskt bygg og leggjum fóðrið á bakka. Samkvæmt athugunum sjálfboðaliða er það étið jafnóðum. Við höfum hins vegar áhyggjur af matarleifum og mygluðum mat sem almenningur skilur eftir við tjarnirnar eða kastar í vatnið. Við höfum ítrekað boðist til samstarfs um leiðbeiningaskilti um viðeigandi fóður og umgengni.

Sjálfboðaliðar sinna meira en fóðrun

Starf Dýravaktarinnar byggist fyrst og fremst á frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja sem vilja stuðla að velferð fuglanna. Styrkir sveitarfélaga til samtakanna nema samtals 300.000 krónum fyrir fyrri hluta ársins 2026 og hafa aðeins borist frá Hafnarfjarðarbæ og Kópavogsbæ. Við þökkum þann stuðning. Enginn styrkur hefur borist frá Reykjavíkurborg á þessu ári.
Til samanburðar áætlar Dýravaktin að þurfi að lágmarki fimm milljónir króna til fóðurkaupa fyrir fimm til sex mánaða vetrarstarf á um fjórtán gjafstöðum. Stuðningur almennings og fyrirtækja er því forsenda þess að við getum sinnt verkefninu.
Að ráði fuglavistfræðinga í Bretlandi vinnum við nú að því að láta hanna sérstakt andfuglafóður fyrir Dýravaktina. Markmiðið er að mæta næringarþörfum fuglanna með markvissum hætti og tryggja stöðugra framboð á hentugu fóðri.
Sjálfboðaliðar fara út í öllum veðrum, fylgjast með fuglunum og bregðast við veikindum, meiðslum og örmögnun. Þetta er umfangsmikil umönnun sem byggist á frjálsum framlögum.
Við óskum eftir gögnum að baki fullyrðingum minnisblaðsins og raunverulegu samstarfi um lausnir. Sveitarfélögin þurfa að útskýra hvernig þau ætla að tryggja að fuglar í neyð fái aðstoð ef stuðningur við þetta starf fellur niður.

Fuglarnir treysta á okkur. Við ætlum að halda áfram að tala máli þeirra og vinna að velferð þeirra.

Styrktarreikningur: 0357-26-001700
Kennitala: 630125-0220
www.dyravaktin.is
Ingiveig Gunnarsdóttir
Fyrir hönd Dýravaktarinnar
Samtök um réttindi og velferð dýra