Dýravaktin

Dýravaktin óskar svara frá MAST um eftirlit með velferð svína

Dýravaktin hefur sent Matvælastofnun upplýsingabeiðni um eftirlit með svínahaldi á Íslandi. Óskað er eftir gögnum um eftirlitsheimsóknir, frávik, undanþágur og eftirfylgni úrbóta.
Tilefnið er nýleg umræða um aðbúnað svína og fullyrðingar um að fá alvarleg frávik í eftirliti séu vísbending um góða dýravelferð. Til að meta það þarf að vita hvernig eftirlitinu er háttað og hvað niðurstöður þess segja um daglegt líf dýranna.
Markmið okkar er að stuðla að faglegri umræðu, gagnsæi og úrbótum. Við munum miðla svörum MAST þegar þau berast.
Hér fer bréfið í heild.

Upplýsingabeiðni til Matvælastofnunar

Til Matvælastofnunar,
Dýravaktin, samtök um réttindi og velferð dýra, óskar eftir upplýsingum og gögnum um framkvæmd eftirlits með velferð svína á Íslandi.
Tilefnið er nýleg umræða um aðbúnað svína og vísanir til þess að fá alvarleg frávik í eftirliti sýni að velferð dýranna sé almennt góð. Til að meta slíkar fullyrðingar þarf að liggja fyrir hvað er skoðað, hversu umfangsmikið eftirlitið er, hvaða undanþágur gilda og hvernig úrbótum er fylgt eftir.
Við óskum eftir eftirfarandi upplýsingum fyrir árin 2023–2025 og árið 2026 fram að dagsetningu svars, eftir því sem gögn liggja fyrir:

1. Umfang eftirlits og fyrirvari heimsókna
Hversu mörg svínabú voru starfandi hvert ár, hversu mörg þeirra voru skoðuð og hversu margar eftirlitsheimsóknir fóru fram?
Óskað er eftir sundurliðun í reglubundið eftirlit, eftirfylgni og heimsóknir vegna ábendinga. Jafnframt óskum við eftir fjölda boðaðra og óboðaðra heimsókna, upplýsingum um lengd fyrirvara þegar heimsóknir voru boðaðar og skýringum á því hvenær talið er nauðsynlegt að boða eftirlit.

2. Mat á velferð dýranna
Hvaða skoðunaratriði og mælikvarðar eru notuð til að meta velferð svína? Við óskum eftir gildandi skoðunarhandbók, viðeigandi verklagsreglum og leiðbeiningum um flokkun frávika.
Sérstaklega er óskað upplýsinga um hvernig metin og skráð eru sár, helti, holdafar, halabit, veikindi, afföll, aðgangur að rótefni, hreyfifrelsi og meðferð veikra eða slasaðra dýra. Hvernig eru dýr valin til skoðunar og hversu stór hluti þeirra er metinn í hverri heimsókn?

3. Frávik og eftirfylgni
Óskað er eftir sundurliðun skráðra frávika eftir árum, skoðunaratriðum og alvarleika, ásamt fjölda búa sem þau vörðuðu.
Hversu oft voru sömu eða sambærileg frávik endurtekin? Hvaða frestir voru veittir til úrbóta, hvernig var staðfest að úrbótum væri lokið og hvaða þvingunarúrræðum eða viðurlögum var beitt þegar úrbætur létu á sér standa?

4. Aðlögunarfrestir og undanþágur
Hversu mörg bú hafa fengið viðbótarfrest til 1. janúar 2028 vegna tiltekinna krafna reglugerðar nr. 1276/2014? Hvaða ákvæði varða frestirnir, hversu mörg dýr falla undir þá og hvaða tímabundnu skilyrði um velferð hafa verið sett?
Við óskum eftir afritum af ákvörðunum um þessa fresti og upplýsingum um hvernig skilyrðum þeirra er fylgt eftir.

5. Halaklippingar og verkjameðferð
Hversu mörg bú hafa nú heimild til halaklippinga og á hvaða gögnum byggist mat á nauðsyn þeirra?
Hvaða kröfur eru gerðar um úrbætur á aðbúnaði áður en heimild er veitt eða endurnýjuð? Hvernig er árangur þeirra metinn?
Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um kröfur til deyfingar, verkjastillingar og þjálfunar þeirra sem framkvæma aðgerðina, ásamt því hvernig framkvæmdin er sannreynd við eftirlit.

6. Úrbætur á eftirlitskerfinu
Hvaða breytingar hafa verið gerðar á eftirliti með velferð búfjár í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar frá nóvember 2023? Hvaða verkefnum er lokið, hvað er enn í vinnslu og hvernig hefur árangur breytinganna verið metinn, sérstaklega í svínahaldi?
Hefur farið fram innri eða óháð úttekt á því hvort eftirlitið greini velferðarvandamál með fullnægjandi hætti? Ef svo er óskum við eftir niðurstöðum hennar.

7. Eftirlit með búinu sem nýleg umfjöllun varðar
Við óskum eftir eftirlitsskýrslum MAST vegna þess gyltubús Stjörnugríss sem myndefni í nýlegri fjölmiðlaumfjöllun varðar, fyrir sama tímabil, ásamt ákvörðunum um úrbætur, aðlögunarfresti og eftirfylgni.
Jafnframt óskum við eftir skýringum á því hvort og þá hvaða atriði í myndefninu hafi kallað á frekari rannsókn eða endurmat stofnunarinnar, að því marki sem unnt er að upplýsa um það meðan mál er til meðferðar.

8. Túlkun eftirlitsniðurstaðna og samanburður við önnur lönd
Telur MAST að fyrirliggjandi eftirlitsgögn nægi til að draga almenna ályktun um góða velferð svína á Íslandi? Ef svo er, á hvaða mælikvörðum byggist það mat?
Liggur fyrir samanburður við önnur Norðurlönd eða ríki Evrópusambandsins þar sem aðferðir, viðmið, undanþágur og úrtök eru sambærileg? Við óskum eftir slíkum gögnum ef þau eru til.
Beiðni um aðgang að fyrirliggjandi gögnum er lögð fram á grundvelli upplýsingalaga nr. 140/2012. Ekki er óskað eftir persónugreinanlegum upplýsingum. Heimilt er að afmá upplýsingar sem falla undir lögmætar takmarkanir á aðgangi og afhenda aðra hluta gagnanna.
Við óskum eftir gögnum á rafrænu formi og töflulegum upplýsingum á vinnanlegu sniði, svo sem Excel eða CSV, ef þær eru þegar tiltækar þannig. Ef hluti beiðninnar krefst nýrrar samantektar óskum við eftir samtali um afmörkun og afhendingu þeirra gagna sem þegar liggja fyrir. Vinsamlegast upplýsið okkur fyrir fram ef kostnaður kann að falla til.
Markmið Dýravaktarinnar er að stuðla að faglegri og upplýstri umræðu og úrbótum sem skila sér í daglegu lífi dýranna. Við óskum eftir staðfestingu á móttöku, málsnúmeri og upplýsingum um áætlaðan afgreiðslutíma. Gögn má gjarnan afhenda í áföngum.

Með vinsemd og virðingu,
Ingiveig Gunnarsdóttir
Fyrir hönd Dýravaktarinnar
Samtök um réttindi og velferð dýra
dyravaktin.is