Dýravaktin – samtök um réttindi og velferð dýra
eru félagasamtök sem stunda ekki atvinnurekstur og þar með byggir starfssemi samtakanna á styrkjum og frjálsum framlögum frá einstaklingum og stofnunum.

DÝR ERU SKYNI GÆDD
Siðmenntuðum samfélögum ber að standa vörð um velferð dýra. Það er á okkar ábyrgð að tryggja að dýrin njóti góðra lífsskilyrða sem skyni gæddar verur sem eiga rétt á að sýna sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt. Ef dýr búa við slæmar aðstæður eiga þau ætíð að njóta vafans.
TILGANGUR SAMTAKANNA
Starfssemin er byggð á meginreglum góðvildar og réttlætis fyrir öll dýr og markmiðið er að standa vörð um réttindi dýra. Samtökin munu vinna sleitulaust að því að vekja athygli á dýravelferðamálum og stuðla að mannúðlegri meðferð í öllum geirum er snúa að velferð dýra. Við trúum á kraft samfélags og samvinnu til að knýja fram breytingar og bjóðum sjálfboðaliða velkomna til að taka þátt í viðleitni okkar að skapa betri heim fyrir dýr.
MIKILVÆGI SJÁLFBOÐALIÐA
Samtökin byggja starfssemi sína eingöngu á framlagi sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að fara á vettvang til að sinna dýrum í neyð. Að vetrarlagi sinna sjálfboðaliðar m.a. daglegri fóðrun andfugla sem hópast á tjarnir og læki þegar jarðbönn eru og frosthörkur í leit að lífsviðurværi.
LANGTÍMAMARKMIÐ
Langtímamarkmið samtakanna er að koma á laggirnar dýraathvarfi fyrir villt dýr og búfénað með aðkomu styrktaraðila. Athvarfið mun hýsa slösuð, særð og veik dýr og veita þeim aðhlynningu dýralækna og skjól meðan þau ná heilsu og kröftum á ný. Samtökin munu vinna sleitulaust að því að vekja athygli á dýravelferðamálum og stuðla að mannúðlegri meðferð í öllum geirum er snúa að velferð dýra. Við trúum á kraft samfélags og samvinnu til að knýja fram breytingar og bjóðum sjálfboðaliða velkomna til að taka þátt í viðleitni okkar að skapa betri heim fyrir dýr.

Dýraníð

Styðja okkur
