Við erum öll hluti af náttúrunni
Dýravaktin
Samtök um réttindi og velferð dýra
Gerast sjálfboðaliði
Það er góð tilfinning að geta lagt sitt af mörkum til að hjálpa dýrum. Við bjóðum þér að slást í hóp sjálfboðaliða sem fóðra andfugla á veturna. Fuglarnir leita til okkar mannfólksins þegar hungur sverfur að. Við vitum að starf okkar skiptir sköpum og léttir lífsbaráttu fuglanna sem auðga líf okkar og gleðja okkur með nærveru sinni. Viðkomandi þarf að hafa bifreið til umráða, og hafa brennandi áhuga á velferð dýra.
Styrkja samtökin
Dýravaktin samtök um réttindi og velferð dýra eru félagasamtök sem stunda ekki atvinnurekstur og þar með byggir starfssemi félagsins á styrkjum og frjálsum framlögum frá stofnunum og einstaklingum. Samtökin standa fyrir fóðrun þúsunda andfugla á stórhöfuðborgarsvæðinu og víðar yfir vetrartímann. Það má reikna með að þörfin sé um 250 kg af fóðurkögglum á dag að virði um 55.000 krónur til að dekka alla gjafstaðina.
Fólk fyrir dýr
Fyrir hvað stöndum við

VERNDUN DÝRALÍFS
Ísland er aðili að mörgum alþjóðlegum samningum sem kveða á um verndun náttúru og dýralífs. Það er mikilvægt að stjórnvöld sýni frumkvæði og uppfylli þessar alþjóðlegu skuldbindingar. Endurheimt votlendis og náttúrulegra búsvæða þarf að vera í forgangi til að tryggja líffræðilegan fjölbreytileika og koma í veg fyrir útrýmingu dýrategunda.

FRÆÐSLA OG MIÐLUN
Við munum stuðla að aukinni vitundarvakningu er kemur að réttindum dýra og velferð. Við munum leggja áherslu á miðlun fræðslu um búsvæði og atferli villtra dýra, leiðum til að bæta lífsgæði þeirra og tryggja rétt þeirra sem skyni gæddra vera.

HAGSMUNAGÆSLA
Við erum tilbúin að vinna með stjörnvöldum að því að þróa og innleiða lög sem vernda dýr, rétt þeirra og velferð. Við munum veita stjórnsýslu aðhald og ítreka mikilvægi þess að lögum um velferð dýra sé framfylgt.

Samstarf og stefnumótun
Við leggjum áherslu á aukna samvinnu miilli dýraverndarsamtaka hérlendis til að auka meðvitund um áherslur í dýravernd og stuðla að skýrum stefnuyfirlýsingum. Við munum leita samráðs við alþjóðlegar stofnanir og dýraverndarsamtök sem skara fram úr á sviði náttúru- og dýraverndar.

BJÖRGUN DÝRA - DÝRAATHVARF
Við leggjum áherslu á aðgerðir til að hjálpa dýrum í neyð. Markmið samtakanna er að geta í framtíðinni komið að stofnun dýraathvarfs þar sem slösuð og sjúk dýr fá aðhlynningu og skjól.
STEFNA OG MARKMIÐ
Við erum staðráðin í að berjast fyrir réttindum og velferð allra dýra. Markmið okkar er að skapa heim þar sem komið er fram við dýr af virðingu og mannúð, að þau séu laus við sársauka, hungur og ótta. Við sjáum fyrir okkur framtíð þar sem dýr eru metin að verðleikum, þar sem þau njóta góðs aðbúnaðar og frelsis, öryggis og velferðar. Grunngildi okkar fela í sér heiðarleika, samkennd og linnulausa skuldbindingu fyrir bættri velferð allra dýra. Það er stefna samtakanna að kæra allt dýraníð til lögreglu og þrýsta á löggjafann og stjórnvöld til þess að veita dýrum þá vernd sem þau eftir atvikum þurfa gagnvart eigendum sínum. Með fræðslu, hagsmunagæslu og beinum aðgerðum leitumst við við að hafa varanleg áhrif á líf allra dýra í neyð.
FÓLK FYRIR DÝR
Slagorð okkar, fólk fyrir dýr, felur annars vegar í sér þá siðferðilegu skyldu umráðamanna dýra að annast um dýrin og fara vel með þau og hins vegar það sjónarmið að öll erum við hluti af náttúrunni þar sem heilsa manna, dýra og umhverfis myndar eina heild. Ein heilsa er samþætt sameinandi hugmyndafræði sem felur í sér að með sjálfbærri þróun skuli stefnt að því að hámarka heilsu manna, dýra, plantna og vistkerfa sem öll eru tengd og háð innbyrðis.